NOTE: This article is more than 5 years old.

04 apríl 2003

/

Kynning á breyttu námi í bíliðngreinum

Til þeirra er málið varðar



Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýjum brautalýsingum fyrir bíliðngreinar á heimasíðu sinni, www.menntamalaraduneyti.is Samkvæmt drögunum er gerð tillaga um að grunnnám bíliðna verði stytt úr tveimur önnum í eina og að heildarlengd náms í hinum þremur löggiltu bíliðngreinum, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og bílamálun, verði stytt með samsvarandi hætti. Lagt er til að nám í bifvélavirkjun og bifreiðasmíði taki þrjú og hálft ár og að nám í bílamálun taki þrjú ár.

Námskrárdrögin verða til kynningar á framangreindu vefsvæði næstu fjórar vikurnar eða til 24. apríl 2003. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda inn athugasemdir og ábendingar um brautalýsingarnar í heild, eða einstaka þætti þeirra, til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected]. Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.

Farið er fram á að efni þessa bréfs sé kynnt fyrir þeim sem það á erindi til.

(Apríl 2003)