NOTE: This article is more than 5 years old.
04 apríl 2003
/
Skipun nýs almannavarnaráðs
Fréttatilkynning
Nr. 9/ 2003
Skipun nýs almannavarnaráðs
Í dag öðlast gildi lög nr. 44/2003, um breyting á lögum um almannavarnir o.fl. Umrædd lagabreyting felur í grófum dráttum í sér þá breytingu á stjórnskipulagi almannavarna að verkefni almannavarnaráðs og þar með starfsemi Almannavarna ríkisins er flutt til embættis ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt breytingunni skal sérstakt ráð, almannavarnaráð, vera ríkisstjórninni til ráðgjafar um almannavarnir. Ráðið skal jafnframt starfa með ríkislögreglustjóra þegar almannavarnaástand skapast.
Samkvæmt 6. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 44/2003, eiga sæti í almannavarnaráði forstjóri Landhelgisgæslunnar, landlæknir, ríkislögreglustjóri, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, forstjóri Landssíma Íslands, vegamálastjóri, veðurstofustjóri, flugmálastjóri, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Jafnframt er ráð fyrir því gert að ráðherra skipi óháðan formann ráðsins án tilnefningar.
Dómsmálaráðherra hefur í dag skipað Jón Birgi Jónsson, verkfræðing og ráðuneytisstjóra í samgönguráðuneytinu, formann ráðsins til eins árs. Aðrir sem sæti eiga í ráðinu skv. framangreindu lagaákvæði eru Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Sigurður Guðmundsson landlæknir, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, Brynjólfur Bjarnason forstjóri Landssíma Íslands, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri, Magnús Jónsson veðurstofustjóri, Þorgeir Pálsson flugmálastjóri, Sigrún Árnadóttir framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, Jón Gunnarsson formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
4. apríl 2003.