NOTE: This article is more than 5 years old.
03 júní 2003
/
Breyting í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
Nr. 056
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðherra hefur skipað Björn Inga Hrafnsson formann stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands til fjögurra ára í stað Árna Magnússonar sem látið hefur af því starfi að eigin ósk.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 3. júní 2003