NOTE: This article is more than 5 years old.

25 febrúar 2004

/

Afhending trúnaðarbréfs


Sverrir Haukur Gunnlaugsson afhendir trúnaðarbréf sitt á Indlandi
Afhending trúnaðarbréfs á Indlandi.

Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra, afhenti 23. febrúar 2004, Dr. Abdul Kalam, forseta Indlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Indlandi með aðsetur í London.

Í tengslum við afhendingu trúnaðarbréfsins í Nýju Delhi mun sendiherra eiga fundi með háttsettum embættismönnum í ýmsum ráðuneytum Indlands þar sem m.a. verður rætt um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna árin 2009-2010 og gerð loftferðasamnings milli landanna.

Ísland mun óska eftir því að komið verði á samningi sem miðar að því að koma í veg fyrir tvísköttun einstaklinga og fyrirtækja. Fyrir liggur tillaga indverskra stjórnvalda um gerð samnings til að styrkja menningartengsl milli landanna sem íslensk stjórnvöld hafa tekið vel undir