NOTE: This article is more than 5 years old.
05 maí 2004
/
Breyting á mörkum sveitarfélaga
AUGLÝSING
um staðfestingu á samkomulagi milli sveitarstjórna
Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss
um breytingu á mörkum sveitarfélaganna
Á grundvelli 2. mgr. 3. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við þau lög, hefur félagsmálaráðuneytið hinn 3. maí 2004 staðfest samkomulag, dags. 29. mars 2004, um breytingu á mörkum sveitarfélaganna.
Samkvæmt samkomulaginu verður land í eigu Hveragerðisbæjar í óskiptu landi Reykjatorfu, sem nú er innan Sveitarfélagsins Ölfuss, framvegis innan stjórnsýslumarka Hveragerðisbæjar. Um er að ræða 77,4 ha. landspildu og er hnitasetning landsins með eftirfarandi hætti, samkvæmt hnitakerfi ISN93, eins og nánar er sýnt á uppdrætti:
Nafn A-hnit N-hnit
L01 393728.7 389144.5
L02 393814.0 389331.7
L03 394015.2 389434.5
L04 394013.8 389443.6
L05 394257.2 389450.2
L06 394537.6 389584.3
L07 394859.8 389343.5
L08 394822.1 389077.1
L09 394621.1 388149.7
L10 394410.6 388557.8
L11 394151.0 388844.2
Milli L01 og L02 ræður miðlína Varmár. Lína frá L09, L10, L11 að L01 er 20 metra frá miðlínu Suðurlandsvegar.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.