NOTE: This article is more than 5 years old.

07 júlí 2004

/

Loðnuveiðar á vertíðinni 2004/2005

Fréttatilkynning

Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um loðnuveiðar íslenskra skipa á loðnuvertíðinni 2004/2005. Samkvæmt reglugerð þessari er íslenskum skipum nú heimilt að veiða 224.138 lestir af loðnu. Ákvörðun þessi byggir á tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um bráðabirgðakvóta, en ekki liggur nákvæmlega fyrir á þessari stundu hvenær endurmat fer fram á loðnustofninum og ræðst það m.a. af gangi veiðanna í sumar.

Sjá reglugerðir

Loðnuveiðar íslenskra skipa

Loðnuveiðar erlendra skipa

Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. júlí 2004.