NOTE: This article is more than 5 years old.
16 september 2004
/
Skipanir í embætti
Illugi Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, utanríkisráðherra. Illugi var aðstoðarmaður Davíðs í forsætisráðuneytinu frá desember 2000 til 15. september s.l.
Albert Jónsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, hefur verið skipaður sendiherra í utanríkisþjónustunni frá 15. september og mun starfa í utanríkisráðuneytinu sem sérlegur ráðgjafi utanríkisráðherra.