NOTE: This article is more than 5 years old.

29 september 2004

/

Jón Steinar Gunnlaugsson skipaður dómari við Hæstarétt Íslands

Fréttatilkynning
12/2004

Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 15. október nk. Aðrir umsækjendur um embættið voru:

Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari,
Eggert Óskarsson, héraðsdómari,
Eiríkur Tómasson, prófessor,
Hjördís Björk Hákonardóttir, dómstjóri,
Leó E. Löve, hæstaréttarlögmaður og
Stefán Már Stefánsson, prófessor.

Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
29. september 2004.