NOTE: This article is more than 5 years old.

23 nóvember 2004

/

Ákveðið að birta skrá yfir leyfisskylda veitinga- og gististaði á lögregluvefnum

Samgönguráðuneytið fór þess nýlega á leit við dómsmálaráðuneytið að skrá yfir leyfisskylda aðila skv. lögum nr. 67/1985 um veitinga- og gististaði yrði gerð aðgengileg almenningi.

Dómsmálaráðuneytið hefur í framhaldinu ákveðið að skrá þessi verði aðgengileg á lögregluvefnum, http://www.logreglan.is
Lögreglustjórar sjá nú um að umrædd skrá verði ávallt rétt uppfærð, en áætlað er að uppfærsla eigi sér stað mánaðarlega.