NOTE: This article is more than 5 years old.

06 desember 2004

/

Boðun á upplýsingafund með menntamálaráðherra

Niðurstöður PISA rannsóknarinnar 2003.

Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, boðar hér með til fjölmiðlafundar um niðurstöður PISA rannsóknarinnar 2003.

Fundurinn verður haldinn í dag, mánudaginn 6. desember, kl. 16:00 á 4. hæð menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4.

Vakin er athygli á að fjölmiðlum er óheimilt að birta niðurstöður rannsóknarinnar fyrr en kl. 23:00 í kvöld, 6. desember.