NOTE: This article is more than 5 years old.

15 janúar 2005

/

Skýrsla nefndar um almenningssamgöngur á landi

Í samgönguáætlun 2003-2014 var sett fram það markmið, að hægt verði að ferðast á milli höfuðborgarsvæðis og sem flestra staða á landinu á innan við 3 ½ klst. Auk þess var eitt af markmiðum samgönguáætlunar að almenningssamgöngur í lofti eða á landi nái til allra þéttbýlisstaða með 200 íbúa eða fleiri.

Samgönguráðherra ákvað að skipa nefnd til þess að fara yfir almennngssamgöngur á landi með hliðsjón af framangreindum markmiðum og gera tillögur að framtíðarfyrirkomulag. Nefndinni var ætlað að líta á almenningssamgöngur út frá heildarhagsmunum og koma með tillögu að stefnumótun til framtíðar undir því meginmarkmiði að auka veg almenningssamgangna á landi.