NOTE: This article is more than 5 years old.
18 mars 2005
/
Stuðningsyfirlýsing við Vistvernd í verki
|
Stuðningsyfirlýsing bakhjarla Vistverndar í verki 2005 var undirrituð nýlega í umhverfisráðuneytinu. Vistvernd í verki snýst um að breyta á einfaldan hátt ýmsum venjum í daglegu lífi til þess að gera það vistvænna án þess að draga úr lífsgæðum. Alls taka 13 sveitarfélög þátt í Vistvernd í verki á Íslandi og um 500 heimili hafa lokið þátttöku í verkefninu. Það er Landvernd sem sér um framkvæmd Vistverndar í verki með stuðningi umhverfisráðuneytisins. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef Landverndar. Fulltrúar stuðningsaðila ásamt umhverfisráðherra hittust í umhverfisráðuneytinu af þessu tilefni og stilltu sér upp fyrir myndatöku, hver með táknrænan hlut fyrir sitt fyrirtæki. Á myndinni sést frá vinstri Bryndís S. Valdimarsdóttir frá Yggdrasil með hreinlætisvörur sem hlífa umhverfinu, í Yggdrasil eru einungis seld lífrænt ræktuð matvæli og fleiri náttúruvörur, Ragna I. Halldórsdóttir frá SORPU með taupoka sem er handhægt að versla í til að spara plastið, Kristinn G. Bjarnason frá Toyota með hjólkopp, Toyota selur bíla með tvígengismótor sem nýta allt rafmagn sem bílarnir framleiða og eyða því helmingi minna bensíni, Sigfús Guðfinnsson frá Brauðhúsinu í Grímsbæ með brauðhleif, allur bakstur hjá Brauðhúsinu er úr lífrænt ræktuðum hráefnum auk þess sem seldar eru aðrar lífrænt |