NOTE: This article is more than 5 years old.
21 júní 2005
/
Ráðstefna á vegum Vestnorræna ráðsins
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra tók þátt í ráðstefnu í Færeyjum þann 15. og 16. júní sl. Ráðstefnan sem haldin var af Vestnorræna ráðinu fjallaði um aukið samstarf og samstöðu vestnorrænu landanna í sjávarútvegsmálum einkum þó gagnvart Evrópusambandinu.
Ráðstefnan var fjölsótt en hana sátu vestnorrænu sjávarútvegsráðherrarnir, þingmenn, embættismenn, m.a. frá Evrópusambandinu o.fl. og flutti m.a. einn þeirra; Harry Koster, erindi á ráðstefnunni.
Í máli allra ráðherranna kom fram ríkur vilji til aukins samstarfs á þessu sviði bæði á milli þessara landa og eins við granna sína í austri og vestri.
Í ávarpi sínu rakti Árni M. Mathiesen forsendur slíks samstarfs sem hann skýrði svo ýtarlegar í umræðum sem spunnust eftir ræður ráðherranna.
Sjávarútvegsráðuneytinu 21. júní 2005