NOTE: This article is more than 5 years old.
08 ágúst 2005
/
Sameiningarkosningar 8. október 2005

Kosið verður um sameiningu eftirtalinna sveitarfélaga samkvæmt tillögum sameiningarnefndar átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem skipuð er af félagsmálaráðherra.
|
Grundarfjarðarbær Helgafellssveit Stykkishólmsbær Eyja- og Miklaholtshreppur Snæfellsbær Dalasýsla og Saurbæjarhreppur Dalabyggð Reykhólahreppur
Vestur-Barðastrandarsýsla Tálknafjarðarhreppur Vesturbyggð
Strandasýsla Árneshreppur Kaldrananeshreppur Broddaneshreppur Hólmavíkurhreppur
Strandasýsla og Bæjarhreppur Húnaþing vestra
Austur-Húnavatnssýsla Áshreppur Blönduósbær Höfðahreppur Skagabyggð |
Akrahreppur Sveitarfélagið Skagafjörður
Eyjafjörður, Ólafsfjörður og Siglufjörður Siglufjarðarkaupstaður Akureyrarkaupstaður Ólafsfjarðarbær Dalvíkurbyggð Arnarneshreppur Eyjafjarðarsveit Hörgárbyggð Svalbarðsstrandarhreppur Grýtubakkahreppur
Suður-Þingeyjarsýsla Aðaldælahreppur Tjörneshreppur Kelduneshreppur Skútustaðahreppur Húsavíkurbær Öxarfjarðarhreppur Raufarhafnarhreppur
Norður-Þingeyjarsýsla Svalbarðshreppur Þórshafnarhreppur
Norður-Múlasýsla Skeggjastaðahreppur Vopnafjarðarhreppur
|
Fjarðabyggð Mjóafjarðarhreppur Fáskrúðsfjarðarhreppur Austurbyggð
Árnessýsla – Ölfus og Flói Sveitarfélagið Árborg Hveragerðisbær Sveitarfélagið Ölfus Gaulverjabæjarhreppur Hraungerðishreppur Villingaholtshreppur
Árnessýsla – uppsveitir Bláskógabyggð Hrunamannahreppur Grímsnes- og Grafningshreppur Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Suðurnes Reykjanesbær Sandgerðisbær Garður
Reykjanes Hafnarfjarðarkaupstaður Vatnsleysustrandarhreppur |
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst laugardaginn 13. ágúst 2005 og er unnt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um land allt, sendiráðum, fastanefndum hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands.
Um atkvæðagreiðsluna og kjörskrá gilda ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna, eftir því sem við á. Atkvæðagreiðslan fer þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil orðið „já“ ef hann er hlynntur tillögu samstarfsnefndar eða „nei“ ef hann er mótfallinn tillögunni.
Almennt um framkvæmd kosningarinnar
Kosningarrétt eiga allir íbúar framangreindra sveitarfélaga sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosningin fer fram og uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Þetta þýðir meðal annars að danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, og aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, mega greiða atkvæði um tillögu sameiningarnefndar. Er þetta í samræmi við breytingu sem gerð var á fyrrgreindum lögum árið 2002.
Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land og á kjörstöðum í viðkomandi sveitarfélögum á kjördag, 8. október. Erlendis fer atkvæðagreiðsla fram á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnunum, ræðismönnum eða á öðrum stöðum samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytis. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer þannig fram að þeir kjósendur sem eru hlynntir tillögu samstarfsnefndar um sameiningu viðkomandi sveitarfélaga skrifa „já“ á kjörseðilinn en þeir sem eru mótfallnir sameiningu skrifa „nei“.
Skilyrði er að kjósandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag. Viðkomandi sveitarstjórnir auglýsa nánar staðsetningu kjörstaða og opnunartíma þeirra, svo og hvar talning atkvæða fer fram í hverju sveitarfélagi.
Sveitarfélög á Íslandi eru nú 101 talsins en þau voru 104 í upphafi árs 2004. Nú þegar hafa sameiningartillögur verið samþykktar í 12 sveitarfélögum og munu þær sameiningar taka gildi í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í maí 2006, og verða sveitarfélögin þá 92. Ef allar sameiningartillögurnar sem kosið verður um 8. október næstkomandi hljóta samþykki verða sveitarfélögin 47 í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna.