NOTE: This article is more than 5 years old.

08 ágúst 2005

/

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.

Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja eftirtalin verkefni:

  • Sérstök verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. Ekki eru veittir styrkir til árvissra eða fastra atburða í félagsstarfi, svo sem þinga, móta eða þess háttar atburða né ferða hópa.
  • Þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbeinenda til virkrar þátttöku í æskulýðsstarfi, m.a. með námskeiðum og þátttöku í þeim.
  • Nýjungar og tilraunir í félagsstarfi barna og ungmenna.
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka á sviði félagsstarfa.

Við mat á umsóknum er meðal annars tekið tillit til fjölda þeirra sem taka þátt í verkefnunum og eigin fjármögnunar verkefna. Sérstakt tillit er tekið til minni félaga og félagasamtaka er vinna að æskulýðsmálum.

Styrkir úr sjóðnum eru veittir tvisvar á ári og næsti frestur til að skila inn umsóknum er 15. september 2005.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, sími 545-9500 og á vef ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.

Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Æskulýðssjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.