NOTE: This article is more than 5 years old.

26 ágúst 2005

/

Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla

Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla.

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2006-2007 þurfa að berast menntamálaráðuneytinu eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu og í skólunum. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is