NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 2005
/
Bætt samskipti stjórnvalda og borgara
Samgönguráðherra hefur skorið upp herör gegn óþarfa skriffinnsku í þeim málaflokkum sem undir ráðuneyti hans heyra. Því er ekki að neita að vegna mikilvægis öryggismála í samgöngum er óhjákvæmilegt að setja reglur um hæfni þeirra sem samgöngutækjum stýra, um gerð og búnað samgöngutækja og um hönnun og smíði samgöngumannvirkja.
Til að yfirfara hvort gera megi aðgengilegra að fara eftir þessum reglum skipaði ráðherra starfshóp fyrir réttu ári síðan og fól honum að fara skipulega yfir öll lög og reglur sem um sviðið gilda og gera tillögur til úrbóta.
Skýrsla og tillögur starfshópsins fylgja hér með (Skýrsla starfshópsins) Ákveðið hefur verið að ráðast í framkvæmd flestra tillagnanna. Sumar eru einfaldar en aðrar þurfa ítarlegri skoðunar við og meiri vinnu áður en breytingar verða að veruleika. Ráðuneytið býður áhugasömum að koma á framfæri sjónarmiðum sínum við einstakar tillögur. Frestur til þess hefur verið ákveðinn til 15. október nk.