NOTE: This article is more than 5 years old.

04 október 2005

/

Nr. 9/2005 - Boðað til fjölmiðlafundar

 

 

Boðað til fjölmiðlafundar

 

Landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra munu í dag, þriðjudaginn 4. október kl. 14:00, undirrita kaupsamning f.h. ríkissjóðs vegna sölu á tilgreindum eignum og skuldum Lánasjóðs landbúnaðarins. Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar Landsbanka Íslands hf. munu undirrita kaupsamninginn f.h. Landsbanka Íslands hf. Undirritunin fer fram á Radisson SAS Hótel Sögu í fundarsal A á 2. hæð (norðurinngangur).

  

Í landbúnaðarráðuneytinu,

4. október 2005