NOTE: This article is more than 5 years old.

19 nóvember 2005

/

Utanríkisráðherra opnar íslenska listahátíð í Köln

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, opnaði listahátíðina "Islandbilder" í Köln með ávarpi í gær, 18. nóvember. Um er að ræða stærstu og fjölbreyttustu kynningu á íslenskri nútímalist og menningu sem fram hefur farið í Þýskalandi. Kynningin, sem stendur fram í janúar, nær til myndlistar, ljósmyndunar, kvikmynda, bókmennta, tónlistar og hönnunar en rúmlega 100 íslenskir listamenn eru í Köln og kynna verk sín. Um 1200 manns sóttu opnunarhátíðina.

Utanríkisráðherra hélt síðan hátíðarræðu hjá þýsk-íslenska vináttufélaginu í Köln í dag en þar var fagnað 50 ára afmæli félagsins.

Ráðherra átti einnig fundi með Michael Breuer, Evrópumálaráðherra Nordrhein-Westfalen, og Josef Müller, borgarstjóra í Köln.

Opnunarávarp 18. nóvember

Hátíðarræða 19. nóvember