NOTE: This article is more than 5 years old.

25 nóvember 2005

/

33. aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneytinu

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra ávarpaði 33. aðalfund Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, mánudaginn 21. nóvember síðastliðinn. Í ræðu sinni lagði Einar áherslu á mikilvægi sjávarútvegs almennt í heiminum og einnig fyrir innra starf FAO, sem er sú hnattræna stofnun sem fer með mál er varða sjávarútveg.

Einar sagði mikilvægt að styrkja innra starf FAO til þess að gera starf stofnunarinnar skilvirkara. Þetta væri ekki síst mikilvægt í þeim tilgangi að efla vinnu við framkvæmd áætlunar um að fækka þeim sem þjást af hungri um helming fyrir árið 2015.

Matvælaframleiðsla í þróunarríkjum væri mikilvæg til þess að tryggja þar næga og heilnæma fæðu, en einnig til þess að afla útflutningstekna. Óskaði hann þess að þróunarríki yrðu enn virkari þáttakendur í alþjóðaverslun með matvæli en nú er.

 

Einar sagði sjávarútveg vera mikilvægan fyrir bæði þróuð ríki og þróunarríki, til matvælaöflunar og sem undirstöðu efnahagslegrar velmegunar. Þannig geti fiskur bæði verið uppspretta mikilvægra næringarefna og erlends gjaldeyris, sem nýtist samfélaginu öllu.

 

Ein af grunnstoðum þróunarsamvinnu Íslendinga sagði Einar vera uppbyggingu sjálfbærs sjávarútvegs í þróunarríkjum. Í þessu sambandi starfaði Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna á Íslandi auk þess sem Ísland tekur þátt í þróunarverkefnum tengdum sjávarútvegi bæði í tvíhliða samstarfi og í gegnum alþjóðastofnanir, svo sem FAO. Ísland veitti nýlega  fiskimáladeild FAO styrk upp á eina milljón Bandaríkjadala til slíkra verka.

 

Einar sagði að í þeim tilvikum þar sem þörf væri á hnattrænni samvinnu eða samræmingu varðandi sjávarútveg væri FAO rétti vettvangurinn til slíks. Stjórn á nýtingu lifandi auðlinda hafsins væri hins vegar best komið hjá þeim ríkjum sem hafa auðlindirnar innan sinnar lögsögu, og í svæðisbundnu samstarfi þar sem stofnar halda sig ekki innan einnar lögsögu. Lagði Einar áherslu á að hnattrænar lausnir í þessu sambandi myndu valda skaða frekar en gera gagn.

 

Sjávarútvegur þarf að á byggjast á bestu vísindalegu niðurstöðum, skilgreindum réttindum og nýtingu markaðsaflanna og  ríkisstyrkir að hverfa úr greininni. Það er besta leiðin til að tryggja sjálfbærni veiða og velferð þess fólks sem kemur að sjávarútvegi til lengri tíma sagði Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.

 

Í tengslum við fundinn, sem fram fer í höfuðstöðvum FAO í Róm dagana 19.-25. nóvember, átti Einar m.a. fundi með Dr. Jaques Diouf framkvæmdastjóra FAO, Ichiro Nomura yfirmanni fiskimáladeildar FAO og Paolo Scarpa Bonazza Buora sjávarútvegsráðherra Ítalíu.

 

Ræða ráðherra

 

EKG sjávarútvegsráðherra í ræðustól á FAO fundi í Róm

 

EKG_a_FAO_fundi_i_Rom_minnkud_mynd 

 

 

 

 

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. nóvember 2005