NOTE: This article is more than 5 years old.
02 janúar 2006
/
Starfslok sendiherra

Sveinn Á. Björnsson, sendiherra, lét að eigin ósk af störfum 1. janúar sl. Sveinn hóf störf í utanríkisþjónustunni 1988 en hafði þá starfað í 18 ár í viðskiptaráðuneytinu. Hann starfaði á sendiráðum og fastanefndum í París, Strassborg og Washington og var um skeið fastafulltrúi gagnvart FAO í Róm með búsetu á Íslandi.
