NOTE: This article is more than 5 years old.

03 mars 2006

/

Innköllun aflaheimilda til áframeldis og endurúthlutun

Með vísan til bráðabirgðaákvæðis nr. XXXI í lögum nr. 38/1990 og ákvæða í reglugerð nr. 464/2002 hefur verið úthlutað til fyrirtækja í fiskeldi 500 tonna aflaheimildum árlega af óslægðum þorski sem nýta skal til áframeldis. Sérstakar reglur hafa gilt um úthlutun þessa. Tilflutningur á eftirstöðvum af úthlutuðum heimildum hefur verið leyfður á milli fiskveiðiára en reglur hafa verið settar um að ekki beri að flytja vannýttar heimildir yfir fleiri en eitt fiskveiðiár. Í ljósi þessa og fleiri atriða hefur sjávarútvegsráðuneytið í dag innkallað alls 156,134 tonn af ónýttum eldiskvóta frá fyrirtækjum sem hætt eru rekstri eða sem ekki hafa uppfyllt sett skilyrði. Téðum aflaheimildum hefur jafnframt verið endurúthlutað til eftirfarandi fyrirtækja.

Álfsfell ehf., Hnífsdal                                                  17,137 tonn

Glaður ehf., Bolungarvík                                            19,992 tonn

Guðmundur Runólfsson hf., Grundarfirði                  17,137 tonn

Hraðfrystihúsið Gunnvör hf., Hnífsdal                       76,162 tonn

Þorskeldi ehf., Djúpavogi                                           25,706 tonn

 

 

 

Endurúthlutunin er í samræmi við núgildandi reglur og vægi fyrirtækja í úthlutuninni fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, þó með þeirri undantekningu að fyrirtæki sem hafa undir höndum miklar ónýttar heimildir fá ekki skerf af endurúthlutuninni. Þeim aflaheimildum sem þannig falla til er skipt upp á milli hinna fyrirtækjanna í samræmi við hlutfallslegt vægi þeirra eins og áður var skýrt.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 3. mars 2006