NOTE: This article is more than 5 years old.

17 mars 2006

/

Afhending trúnaðarbréfs


Heimir Hannesson, sendiherra, og  Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands
Hannes Heimisson, sendiherra, og Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands

Þann 14. mars afhenti Hannes Heimisson, sendiherra Vaira Vike-Freiberga, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lettlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Riga.

Í viðræðum við forseta Lettlands lagði sendiherra áherslu á náinn vinskap þjóðanna og vaxandi samskipti, bæði á vettvangi stjórnmála og viðskipta. Forseti Lettlands tók undir þetta og þakkaði Íslendingum fyrir mikilvægan stuðning á þeim fimmtán árum er liðin væru frá því Lettland endurheimti sjálfstæði sitt. Vaira Vike-Freiberga kvaðst hafa tekið eftir velgengni Íslendinga á undanförnum árum, í efnahagsmálum og á sviði menningar og vísinda. Íslensk fyrirtæki hefðu haslað sér völl í Lettlandi og að starfsemi þeirra væri mikilvæg fyrir uppbyggingu atvinnu í landinu.





Heimir Hannesson, sendiherra, og  Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands
Hannes Heimisson, sendiherra, og Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands