NOTE: This article is more than 5 years old.
04 apríl 2006
/
Kynning á nýrri námskrá í rafiðngreinum
Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá í rafiðngreinum.
Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá í rafiðngreinum á vefsvæði sínu www.menntamalaraduneyti.is. Um er að ræða námskrá fyrir sameiginlegt grunnnám og sérnám til sveinsprófs í rafeindavirkjun, rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafveituvirkjun. Ennfremur er í námskránni skilgreint nám í kvikmyndasýningarstjórn.
Með þeirri heildarnámskrá sem hér um ræðir hefur verið stigið stórt skref í samhæfingu starfsnáms í hinum ýmsu greinum rafiðnaðar og aðlögun þess að þörfum atvinnulífsins. Færnikröfur starfa í rafiðngreinum hafa að undanförnu þróast í þá veru að æskilegt þykir að breikka og dýpka sameiginlegt undirstöðunám í rafiðnaði, m.a. á sviði stafrænnar tækni. Af þessum sökum er umfang grunnnáms rafiðna nú aukið úr 43 ein. í 80 ein., eða úr tveimur önnum í fjórar. Heildarlengd náms til sveinsprófs breytist ekki en samsetning þess í sumum tilvikum. Í nýrri námskrá er lýst tvenns konar námsskipulagi, verknámsleið þar sem meðalnámstími í skóla er 7 annir auk 24 vikna starfsþjálfunar og samningsbundið iðnnám þar sem meðalnámstími í skóla er 6 annir auk 48 vikna starfsþjálfunar. Í rafvirkjun og rafvélavirkjun er hægt að velja á milli námsleiða. Í rafveituvirkjun er aðeins um að ræða samningsbundið iðnnám og í rafeindavirkjun er námið eingöngu samkvæmt verknámsleið.
Námskrárdrögin verða til kynningar á framangreindu vefsvæði til 24. apríl 2006. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrána í heild eða einstaka þætti hennar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected]. Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.
Gert er ráð fyrir að námskráin taki gildi frá og með upphafi næsta skólaárs 2006-2007.
Farið er vinsamlega fram á að efni þessa bréfs sé kynnt fyrir þeim sem það á erindi við.