NOTE: This article is more than 5 years old.

05 apríl 2006

/

Skýrsla viðræðuhóps um löggæslumálefni í Reykjavík.

Í ágústmánuði árið 2003 var að frumkvæði Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra skipaður viðræðuhópur um löggæslumálefni í Reykjavík og hefur hann síðan verið samstarfsvettvangur dóms- og kirkjumálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda um löggæslumál í Reykjavík. Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, hefur leitt starf hópsin en auk hans hafa borgarfulltrúarnir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dagur B. Eggertsson setið í hópnum með Þorsteini Davíðssyni, aðstoðarmanni dóms- og krikjumálaráðherra, Böðvari Bragasyni lögreglustjóra í Reykjavík og Ingimundi Einarssyni, varalögreglustjóra í Reykjavík. Hafa þeir rætt leiðir til að styrkja og efla samvinnu um öryggis- og löggæslumál í borginni.

Nú hefur hópurinn unnið skýrslu um starf sitt og kynnt dóms- og kirkjumálaráðherra tillögur sem hann gerir til framfara í löggæslumálum í höfuðborginni.

 Skýrsla viðræðuhóps um löggæslumálefni í Reykjavík. PDF-skjal