NOTE: This article is more than 5 years old.
07 apríl 2006
/
Fiskiþing 2006
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti
Ræða sjávarútvegsráðherra á Fiskiþingi
Umhverfismerkingar sjávarafurða var meðal þess Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra gerði að umtalsefni í ræðu sinni á Fiskiþingi í dag. Yfirskrift þingsins er: Sjávarútvegur og umhverfi.
Ráðherra sagði að umhverfismerkingar og rekjanleiki vöru verði eflaust hluti af alþjóðlegum fiskviðskiptum í framtíðinni. Einokun á umhverfismerkingum og viðmiðum kunni hins vegar ekki góðri lukku að stýra og hagsmunatengsl bjóði hættunni heim. Fiskifélag Íslands eigi að vera í forystu fyrir þessari umræðu hér á landi og að móta framtíðarstefnu okkar á þessu sviði. Sjávarútvegsráðuneytið er tilbúið til að taka þátt í þessari umræðu og vinnu en stefnumótunin eigi að vera á vettvangi greinarinnar og þar sé eðlilegast að Fiskifélagið sé í lykilhlutverki.
Ráðherra gerði einnig að umtalsefni betri horfur í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Fyrirtæki sem hafi haldið sjó við erfiðar aðstæður horfi nú fram á bjartari tíma með breytingum á gengi krónunnar og uppskeri væntanlega ríkulega í kjölfarið.
Sjávarútvegsráðuneytinu 7. apríl 2006