NOTE: This article is more than 5 years old.

05 maí 2006

/

Norræn ráðstefna um hagræna stjórn fiskveiða

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

Norræn ráðstefna um hagræna stjórn fiskveiða

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sótti á miðvikudag og fimmtudag norræna ráðstefnu í Færeyjum um hagræna fiskveiðistjórn og auðlindarentu . Á ráðstefnunni var m.a. kynnt áfanganiðurstaða norræns rannsóknarhóps um hagræna útkomu fiskveiðistjórnunar á Norðurlöndum að slepptu Finnlandi. Eyjólfur Guðmundsson deildarforseti við Háskólann á Akureyri kom meðal annarra að vinnu hópsins og kynnti sérstaklega íslenska hluta rannsóknarinnar.  

 

Carl-Christian Schmidt forstöðumaður fiskimáladeildar OECD og Ásgeir Daníelsson hagfræðingur Seðlabanka Íslands fluttu fræðileg inngangserindi um hagræna fiskveiðistjórn og  Kjartan Hoydal framkvæmdastjóri Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, NEAFC, flutti erindi um almennar forsendur fiskveiðistjórnunar.

 

Á ráðstefnunni voru tvennar pallborðsumræður. Sú fyrri um almenna framkvæmd fiskveiðistjórnar á Íslandi, Danmörku, Færeyjum og Grænlandi. Friðrik Már Baldursson prófessor við Háskóla Íslands tók þátt í fyrri umræðunni fyrir Íslands hönd.

 

Í lok ráðstefnunnar var síðari pallborðsumræðan þar sem sjávarútvegsráðherrarnir Einar K. Guðfinnsson og Björn Kalsö frá Færeyjum sátu fyrir svörum ásamt Amalie Jessen ráðuneytisstjóra sjávarútvegsráðuneytisins á Grænlandi. Megininntak umræðunnar var spurningin um auðlindarentu, hvernig hún myndaðist og ráðstöfun hennar. Svaraði Einar K. fjölmörgum fyrirspurnun úr sal um íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið.

 

Um hundrað gestir sóttu ráðstefnuna frá sex löndum.

 

Í tengslum við ráðstefnuna var haldinn óformlegur fundur sjávarútvegsráðherra Vestnorrænu ríkjanna þriggja; Íslands, Færeyja og Grænlands. Í forföllum grænlenska ráðherrans sótti ráðuneytisstjóri hans fundinn. Þar var m.a. rætt um mikilvægi góðrar og náinnar samvinnu þjóðanna bæði í sjávarútvegi og á öðrum sviðum með sérstaka áherslu á hvernig styrkja megi norrænt samstarf á sviði sjávarútvegs.

Norran_radstefna_i_Fareyjum_3-4_mai_06

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Björn Kalsö sjávarútvegsráðherra Færeyja og Amalie Jessen ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins á Grænlandi.

 

                                                                                    Sjávarútvegsráðuneytinu 5. maí 2006