NOTE: This article is more than 5 years old.

17 maí 2006

/

Undirritun verksamnings um Olweusarverkefnið í grunnskólum 2006-2008

Fimmtudaginn 18. maí nk. kl. 11.00 verður undirritaður á bókasafni Snælandsskóla í Kópavogi, verksamningur um rekstur Olweusarverkefnisins í grunnskólum 2006-2008.

Fimmtudaginn 18. maí nk. kl. 11.00 verður undirritaður á bókasafni Snælandsskóla í Kópavogi, verksamningur um rekstur Olweusarverkefnisins í grunnskólum 2006-2008.

Þar mun menntamálaráðherra, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, fulltrúar Kennarasambands Íslands og framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins undirrita verksamning sem tryggir rekstur Olweusarverkefnisins gegn einelti til ársloka 2008. Auk undirritunarinnar verður stutt kynning um stöðu verkefnisins og framtíðarsýn.