NOTE: This article is more than 5 years old.

27 maí 2006

/

Kosið um hundahald í Grímsey

Samhliða sveitarstjórnarkosningum í Grímseyjarhreppi fór fram atkvæðagreiðsla um tillögu um að afnema bann við hundahaldi sem gilt hefur í eynni í 50 ár. Hlynntir því að leyfa hundahald voru 18 en á móti voru 41.

Bann við hundahaldi verður því væntanlega áfram í gildi í Grímsey.