NOTE: This article is more than 5 years old.
12 júní 2006
/
Sjómannadagurinn 11. júní 2006
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra flutti hátíðarræðu við Reykjavíkurhöfn í tilefni Sjómannadagsins, 11. júní 2006. Þar fjallaði hann um veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar sem kynnt var um síðustu helgi og sagði m.a. að til að byggja upp þorskstofninn gæti þurft að færa tímabundnar fórnir sem til skamms tíma hefðu neikvæð áhrif á tekjumyndun í sjávarútvegi. Hafa þurfi samráð við vísindamenn, sjómenn og aðra þá sem lagt geti til þeirrar umræðu hvernig uppbyggingarstefnu til lengri tíma verði best háttað. Þá greindi sjávarútvegsráðherra frá niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var á ánægju sjómanna með starf sitt og hversu stoltir þeir eru af því. Í ljós kom að um 85 af hundraði sjómanna eru bæði ánægðir og stoltir af starfi sínu, sem er með því besta sem gerist í viðlíka könnunum.
IMG-Gallup gerði á dögunum skoðanakönnun meðal sjómanna sem leiddi í ljós að 85,7% þeirra kváðust mjög stoltir eða frekar stoltir af starfi sínu og 84,4% mjög eða frekar ánægðir með starf sitt. Þá kom einnig fram að meira en tveir af hverjum þremur hyggjast vera til sjós næstu tvö til fimm ár eða þaðan af lengur.
Um veiðiráðjöf Hafrannsóknastofnunarinnar sagði sjávarútvegsráðherra:
Í uppbyggingu okkar helsta nytjastofns, þorsksins gengur hvorki né rekur. Það eru vonbrigðin miklu. Nýleg veiðiráðgjöf sem okkur var kunngerð um síðustu helgi segir í raun að okkur miði ekkert hvað þorskinn áhrærir. Það getum við ekki búið við. Í rauninni eigum við ekki nema einn kost; sem er sá að skapa þær forsendur að við sjáum uppbyggingu helsta nytjastofns okkar á næstu árum.
Nú verðum við með öðrum orðum að móta okkur uppbyggingarstefnu til lengri tíma varðandi þorskstofninn. Slíkt verður ekki gert nema að vel íhuguðu ráði þar sem kallað verður eftir skoðunum vísindamanna, sjómanna og annarra þeirra sem geta lagt til þeirrar umræðu. Við skulum hins vegar gera okkur grein fyrir því að slíkt getur - og mun að öllum líkindum - kalla á tímabundnar fórnir. Þau úrræði sem helst hefur verið bent á, leiða til minnkandi veiði á einhverjum sviðum sem mun hafa neikvæð áhrif á tekjumyndun sjávarútvegsins til skemmri tíma. Slíkt er því þá aðeins réttlætanlegt að við teljum að það færi okkur árangur sé litið til lengri tíma. Þetta er okkar stóra verkefni á komandi tímum.