NOTE: This article is more than 5 years old.
14 júní 2006
/
Fundur forsætis- og utanríkisráðherra með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins
Geir H. Haarde verðandi forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir verðandi utanríkisráðherra munu eiga fund með Jaap de Hoop Scheffer framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu kl. 09:00 föstudaginn 16. júní 2006.
Að fundi loknum, um kl. 10:20, verður efnt til fréttamannafundar í Ráðherrabústaðnum.
Reykjavík 14. júní 2006