NOTE: This article is more than 5 years old.

14 júlí 2006

/

Ríkisskattstjóri lætur af embætti

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 15/2006

Indriði H. Þorláksson, ríkisskattstjóri, hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með 1. október næstkomandi og hefur fjármálaráðherra fallist á lausnarbeiðnina. Indriði hefur verið ríkisskattstjóri frá 1. janúar 1999. Þar áður var hann um langt árabil skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.