NOTE: This article is more than 5 years old.

08 ágúst 2006

/

Telja hrefnuveiðar hafa neikvæð áhrif

Talsmenn Hvalaskoðunarsamtaka Íslands hafa nokkrar áhyggjur af hrefnuveiðum Íslendinga og telja að þær dragi úr möguleikum hvalaskoðunarfyrirtækja og séu neikvæðar fyrir starfsemi þeirra.

Samtökin gáfu út fyrir nokkru kort sem sýnir þau svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin víðs vegar um landið sigla einkum á og á sama korti eru einnig punktar sem sýna hvar hrefnuveiðar hafa verið stundaðar síðustu þrjú sumur. Á fundi fulltrúa hvalaskoðunarfyrirtækja og sveitastjórnar Norðurþings með Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra á Húsavík fyrir helgina lýstu þeir áhyggjum vegna hrefnuveiða. Töldu þeir veiðarnar draga úr möguleikum hvalaskoðunarfyrirtækja til að auglýsa sérstakar hvalaskoðunarferðir í því skyni að lengja ferðamannatímann til dæmis í maí og september fyrir þá erlendu ferðamenn sem hafa sérstakan áhuga á hvalaskoðunarferðum. Kortið má sjá hér.