NOTE: This article is more than 5 years old.

10 september 2006

/

Yfirlýsing frá samgönguráðuneytinu

Samgönguráðuneytið vill taka fram vegna umfjöllunar í Morgunblaðinu í dag um hvalveiðimál að lögfræðingur sem þar er vitnað í varðandi hugsanlegar hvalveiðar Íslendinga er ekki starfsmaður ráðuneytisins.

Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa ítrekað þau sjónarmið sín við ráðuneytið undanfarin misseri að komi til þess að íslensk stjórnvöld leyfi hugsanlega hvalveiðar muni það hafa mjög neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna, eina umfangsmestu atvinnugrein landsmanna.