NOTE: This article is more than 5 years old.

04 október 2006

/

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar verður haldið 23. október til 1. nóvember nk. Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands ef næg þátttaka fæst.

Námskeið og próf er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994. Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar Háskóla Íslands í síma 525 4444 fyrir 18. október nk.

Skráning og nánari upplýsingar eru veittar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.