NOTE: This article is more than 5 years old.

06 október 2006

/

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 6. október 2006

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra gerði gengismál og umhverfismerkingar sjávarafurða m.a. að umtalsefni í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var í Skíðaskálanum í Hveradölum í dag.

Einar ræddi um þróun gengis krónunnar undanfarið ár og hve nauðsynleg lækkun þess var sjávarútveginum og öðrum útflutningsgreinum. Í verulegt óefni hafi stefnt fyrir ári síðan þegar gengi krónunnar stóð sem hæst. Sem betur fer hafi menn ekki látið deigan síga og lækkunin orðið fyrr en margur hugði. „Ég hef heyrt því haldið fram að frá efnhagslegu sjónarmiði hefði verið betra að gengið hefði gefið eftir síðar á árinu. Þessu er ég ósammála. Gengislækkunin hafði fyrir löngu boðað komu sína, með ýmsum hætti. Óstundvísi hennar var hins vegar farin að reyna nógsamlega á þolinmæði okkar og þegar hún loks lét á sér kræla varð hún mikill aufúsugestur útflutningsgreinanna. Við hefðum séð á eftir þýðingarmiklum burðarásum í byggðunum og mikilvægum fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.“ Þróunin undanfarnar vikur og daga sé greininni þó óhagstæð, en valdi ekki enn teljandi búsifjum. Gengisvísitala sem sé innan við 120 endurspegli of sterka krónu.

 

Um umhverfismerkingar sjávarafurða sagðist Einar verða mjög var við aukinn áhuga erlendra kaupenda og seljenda íslenskra sjávarafurða á að geta sýnt fram á það með trúverðugum hætti að íslenskur fiskur sé veiddur úr sjálfbærum stofnum og uppruna hans getið með skýrum hætti. „Ég tel að við séum nú við þær aðstæður að okkur beri að leggja okkur fram um að komast að niðurstöðu. Tími umræðunnar er brátt á enda. Við eigum að sjálfsögðu að móta okkar eigin stefnu í þessum efnum og á okkar eigin forsendum. Við eigum ekki að lúta yfirþjóðlegu eða fjölþjóðlegu valdi heldur fremur tryggja að þessi markaðssetning sé gerð á okkar forsendum og með okkar eigin hagsmuni að leiðarljósi“. Ennfremur beindi sjávarútvegsráðherra þeim tilmælum til fundarmanna að hraða vinnu við þetta mál.

 

Þá fjallaði ráðherra um starfsemi og vöxt AVS-sjóðsins frá því honum var komið á laggirnar, nám í Fjöltækniskóla Íslands fyrir millistjórnenda í fiskvinnslu og Matís ohf. nýstofnað fyrirtæki í eigu ríkisins þar sem sameinaðar eru þær einingar sem starfa á sviði matvælarannsókna á Íslandi.

 

Ræða sjávarútvegsráðherra

 

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 6. október 2006