NOTE: This article is more than 5 years old.
10 október 2006
/
Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn í dag
Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn er í dag 10. október. Yfirskrift dagsins er Vaxandi vitund – aukin von: Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hélt í tilefni Alþjóðageðheilbrigðisdagsins erindi á ráðstefnu sem haldin var í tilefni dagsins undir kjörorðinu Ný hugsun í geðheilbrigðismálum. Ráðstefnan var haldin á vegum Lýðheilsustöðvar í samvinnu við Landlæknisembættið, Landspítala háskólasjúkrahús, Heilsugæsluna í Reykjavík og Skrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Í kvöld verður hin árlega geðganga. og að þessu sinni verður gengið gegn sjálfsvígum. Safnast verður saman við Hallgrímskirkju kl. 20:00 og gengið niður að Tjörn í Reykjavík þar sem þeirra verður minnst sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Sjá nánar: Ávarp heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Alþjóðageðheilbrigðisdaginn 10. október 2006