NOTE: This article is more than 5 years old.
10 október 2006
/
Merkja aukinn áhuga á Íslandi og íslenskum vörum
Áhugi á Íslandi sem ferðamannalandi og á íslenskum vörum hefur aukist í Ameríku samkvæmt könnun sem unnin var á vegum verkefnisins Iceland Naturally. Áhuginn er ekki síst fyrir hendi hjá þeim sem kallast mættu útivistarfólk. Könnun fór fram áður en verkefnið fór af stað í Ameríku árið 1999 og aftur á þessu ári.
Einar Gústavsson, forstöðumaður markaðsskrifstofu Ferðamálastofu í New York, segir að könnunin sýni ótvírætt aukinn áhuga í Ameríku fyrir Íslandi og íslenskum málefnum. ,,Í fyrri könnun höfðu um 13% áhuga á að ferðast til landsins en í ár var þessi tala komin í 18% og um leið hafði fækkað úr 55% í 35% þeim sem töldu ólíklegt að þeir myndu ferðast til Íslands,” segir Einar. Hann kynnti niðurstöður könnunarinnar á stjórnarfundi Iceland Naturally sem haldinn var nýverið í Stykkishólmi en markaðsskrifstofa Ferðamálastofu Í New York og viðskiptaskrifstofa utanríkisráðuneytis þar stýra daglegum framgangi verkefnisins.
Ingimundur Sigurpálsson, formaður stjórnarinnar, segir markmið Iceland Naturally verkefnisins vera tvíþætt. ,,Annars vegar erum við að kynna Ísland sem áhugavert land fyrir ferðamenn og hins vegar kynnum við íslenskar framleiðsluvörur og þjónustu. Eftir þá reynslu sem fengin er vestra var ákveðið að hefja sams konar starf í Evrópu,” segir Ingimundur. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hleypti því af stokkunum í Þýskalandi í lok september. Um miðjan október fer verkefnið af stað í Bretlandi og í nóvember í Frakkklandi.
Í verkefnisstjórn Iceland Naturally sitja fulltrúar frá ferðaþjónustufyrirtækjum og seljendum eða framleiðendum íslenskra vara. Er þannig reynt að ná saman breiðri samstöðu og auknu fjármagni til kynningar- og markaðsstarfs sem bæði kemur frá yfirvöldum og þátttakendum í verkefninu. ,,Við teljum þetta samstarf skila góðum árangri eins og könnunin frá Ameríku sýnir og það er mikilvægt að við kynnum ekki aðeins landið sjálft og náttúru þess heldur einnig þá framleiðslu, þjónustu og menningarstarfsemi, sem Ísland býður upp á. Það skilar sér ekki síður í auknum áhuga og fleiri heimsóknum,” segir Ingimundur.
Í viðhorfskönnuninni kemur fram að þeim hefur fækkað sem tengja ís, snjó og kulda við landið úr 62% í 52% og þeim fjölgað sem finnst landið áhugavert vegna náttúru eða menningar. Í fyrri könnun höfðu 12% áhuga á landinu fyrir sakir náttúru þess en í ár voru þeir orðnir 29%. Þá hefur þeim fækkað úr 44% í 17% sem töldu Ísland lítið höfða til sín.