NOTE: This article is more than 5 years old.

11 nóvember 2006

/

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslu án útgerðar

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslu án útgerðar

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra fjallaði m.a. um mikilvægi fiskmarkaða á aðalfundi Samtaka fiskvinnslu án útgerðar sem haldinn var á Grand Hóteli í dag.

Í ræðu ráðherra kom fram að undanfarin fimm ár hafi verið höndlað með 4,2% - 5,9% heildarafla landsmanna á fiskmörkuðum, eða 90 – 100 þúsund tonn á ári. Á sama tímabili hafi fimmtungur botnfiskaflans farið í gegnum fiskmarkaði, allt að 18% heildarflatfiskaflans og verðmætið numið á annan tug milljarða króna á ári. „Þarna er um mikinn afla og háar fjárhæðir að ræða, sem sýna glögglega hversu þýðingarmiklu hlutverki markaðirnir gegna.“

Fánan er fjölbreytt á fiskmörkuðunum og komu hátt í fimmtíu mismunandi tegundir til uppboðs í fyrra. Sumar í mjög litlum mæli. Þorskur vegur langþyngst en 18% alls þorskafla voru seld á fiskmörkuðum eða tæp 40 þúsund tonn og 28% ýsuaflans eða tæp 30 þúsund tonn.

Þá ræddi ráðherra einnig um umhverfismerkingar sjávarafurða, gengismál og hvalveiðar.

Ræða sjávarútvegsráðherra

Sjávarútvegsráðuneytinu 11. nóvember 2006