NOTE: This article is more than 5 years old.

20 nóvember 2006

/

Aðstoðarmaður samgönguráðherra lætur af störfum

Bergþór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra, hefur látið af störfum í ráðuneytinu. Hann mun leita á önnur mið eins og segir í tilkynningu frá honum til samstarfsmanna.

Bergþóri er þakkað fyrir ánægjulegt og gott samstarf í ráðuneytinu og honum fylgja heillaóskir á nýjum vettvangi frá starfsfólki ráðuneytisins.