NOTE: This article is more than 5 years old.
20 nóvember 2006
/
Forsætisráðherra tekur þátt í Íslandsdegi í Kauphöllinni í New York
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heldur í dag til New York þar sem hann mun á morgun taka þátt í Íslandsdegi í Kauphöllinni í New York (New York Stock Exchange). Ráðherra mun flytja ávarp og eiga fund með fulltrúum Kauphallarinnar og aðilum úr íslensku og bandarísku viðskiptalífi ásamt því sem hann mun hringja út viðskiptin í Kauphöllinni síðdegis.
Reykjavík, 20. nóvember 2006