NOTE: This article is more than 5 years old.
04 desember 2006
/
Sigríður Björk Guðjónsdóttir skipuð til að gegna embætti aðstoðarríkislögreglustjóra.

Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að höfðu samráði við Ríkislögreglustjóra að skipa Sigríði Björk Guðjónsdóttur, sýslumann á Ísafirði, til að gegna embætti aðstoðarríkislögreglustjóra við embætti Ríkislögreglustjóra til 5 ára frá 1. janúar 2007.
Jafnframt hefur dóms- og kirkjumálaráðherra ákveðið að skipa Kristínu Völundardóttur, sýslumann í Hólmavík, til að gegna embætti sýslumanns á Ísafirði til 5 ára frá 1. janúar 2007.
Framangreindar ákvarðanir eru byggðar á 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Reykjavík, 4. desember 2006


