NOTE: This article is more than 5 years old.

05 desember 2006

/

Þriðji fundur verkefnisstjórnar 50+

50+ verkefnisstjórn til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaðiVerkefnisstjórn 50+ boðar til síðasta fundar af þremur um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli, Hvammi, þann 7. desember næstkomandi kl. 8.30-10.00.

  • Hversvegna dregur úr sí- og endurmenntun fólks á vinnumarkaði eftir fimmtugt?
  • Er fólki mismunað innan fyrirtækja eftir aldri með tilliti til möguleika á sí- og endurmenntun?
  • Hvað ræður námsframboði símenntunaraðila?
  • Tengist raunfærnimat stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði?

Dagskrá

1. Jón Torfi Jónasson prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, fjallar um símenntun innan fyrirtækja. 

  • Eru eldri starfsmenn hvattir til þátttöku í símenntun jafnt og þeir sem yngri eru? 
  • Hvernig skynja fyrirtækin þrýsting á þátttöku? 
  • Eru þeir eldri tregari til þátttöku en þeir yngri?  Skiptir starfsmannastefna máli varðandi þátttöku? 
  • Hvaða skýringar eru á minni þátttöku eldra fólks í endurmenntun?

2. Soffía Gísladóttir framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fjalla um símenntunaraðila og samspil framboðs og eftirspurnar. 

  • Hvernig verður framboðið til og eftir hverju fara símenntunaraðilar þegar námsframboð er ákvarðað? 
  • Tengist raunfærnimat á einhvern hátt stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði? 

3. Umræður.

Fundarstjóri er Elín R. Líndal.

Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjórnarinnar og fundaröðina er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is.

Morgunverður verður framreiddur frá kl. 8:00, verð kr. 1.400.-