NOTE: This article is more than 5 years old.

11 janúar 2007

/

Loðnuveiðar

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneytinu

um loðnuveiðar.

Sjávarútvegsráðuneytið hefur borist tillaga frá Hafrannsóknastofnuninni um að leyfilegur upphafsafli í loðnu verði ákveðinn 180 þúsund lestir. Af þessum heildarafla koma rúmar 143 þúsund lestir í hlut íslenskra skipa. Jafnframt hefur ráðuneytið að tillögu Hafrannsóknarstofnunarinnar ákveðið að veiðar með flotvörpu verði einungis heimilaðar á sama svæði og á síðustu vertíð.

11. janúar 2007