NOTE: This article is more than 5 years old.
17 apríl 2007
/
Ráðstefna um áhrif alþjóðavæðingarinnar á sjávarútveginn
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti
Ráðstefna um áhrif alþjóðavæðingarinnar á sjávarútveginn
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, flutti í gær opnunarerindi um áhrif alþjóðavæðingarinnar á sjávarútveginn, á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin er í París á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD).
Ráðherra fór m.a. yfir hve mikilvægur sjávarútvegurinn er fyrir þjóðarhag Íslendinga og að eitt meginverkefni ríkisstjórna í fiskveiðimálum sé að stuðli að sjálfbærri nýtingu auðlinda. Fiskistofnar séu nú í mörgum tilfellum þegar fullnýttir eða ofveiddir í heiminum. Því verði ofveiði sífellt meira vandamál. Í þessu samhengi sé mikilvægt að draga úr skaðlegum ríkisstyrkjum í sjávarútvegi enda stuðli þeir að slæmri nýtingu auðlinda og skekki samkeppnisstöðu þeirra sem ekki njóti slíkra styrkja. Sjálfbær nýting auðlinda eigi að vera í öndvegi enda mjög brýn. Þá vaxi stöðugt kröfur um heilnæmi og öryggi matvæla úr sjó. Það snerti ekki síst þróunarlönd, þar sem sjávarafurðir eru mikilvæg uppspretta fyrir fæðu og útflutningstekjur í þeim löndum.
Frummælendur á ráðstefnunni komu víða að og frá fjölmörgum opinberum stofnunum, hagsmunasamtökum og fyrirtækjum. Með ráðstefnunni í París er ætlunin að leiða saman á einn stað fulltrúa sjávarútvegs á heimsvísu og skapa samræðuvettvang til að greina stöðu sjávarútvegsins í kjölfar aukinnar alþjóðavæðingar. Markmiðið með ráðstefnunni er annars vegar að reyna að greina hvar helstu vankantar alþjóðavæðingarinnar liggja og hvernig hægt sé að bregðast við þeirri stöðu og hins vegar greina í hverju tækifærin felast.
Rannsóknir benda til þess að áhrif alþjóðavæðingarinnar eigi eftir að aukast á komandi árum og því er nauðsynlegt að ræða þessi mál. Mörg og mismunandi sjónarmið hafa komið fram á ráðstefnunni enda aðstæður milli landa mjög mismunandi. Mikilvægt er að skapa aukin tengsl á milli framsækinna sjávarútvegsþjóða og þeirra þjóða sem hafa minni reynslu og þekkingu af viðskiptum með sjávarafurðir á heimsmarkaðnum.
Ráðstefnan hófst í gær og lýkur í dag.
Erindi ráðherra á ráðstefnunni er að finna á heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins.
Sjávarútvegsráðuneytinu 17. apríl 2007