NOTE: This article is more than 5 years old.
27 apríl 2007
/
Samningur um samstarf ríkis og sveitarfélaga á svæði Eyþings um menningarmál og samningur um stuðning við Hvalasafnið
Í dag, föstudaginn 27. apríl kl. 15:15, mun menntamálaráðherra og fulltrúar sveitarfélaganna í Eyþingi undirrita samning um samstarf ríkis og sveitarfélaga á svæði Eyþings um menningarmál. Undirritunin fer fram í Hvalasafninu á Húsavík. Við sama tækifæri verður undirritaður samningur um stuðning menntamálaráðuneytis við Hvalasafnið.