NOTE: This article is more than 5 years old.

04 maí 2007

/

Innritun í framhaldsskóla 2007

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2007 er til mánudagsins 11. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 14. maí.

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2007 er til mánudagsins 11. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 14. maí. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina er að finna á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð.

Nemendur sem ljúka 10. bekk 2007
Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá bréf með leiðbeiningum og veflykli sem opnar þeim aðgang að innrituninni. Forráðamenn þeirra fá einnig bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina.

Aðrir umsækjendur um nám í dagskóla
Umsækjendur sem ekki hafa veflykil geta sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nemum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám
Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um framhaldsskólana má finna á menntagatt.is.