NOTE: This article is more than 5 years old.

18 maí 2007

/

Bogi Nilsson til áramóta

Samkomulag hefur orðið um það milli Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra og Boga Nilssonar ríkissaksóknara að starfslokum Boga sé frestað frá 1. júlí 2007 til 1. janúar 2008.

Í ljósi þessa samkomulags verður embætti ríkissaksóknara auglýst að nýju síðar á árinu.

Reykjavík 18. maí 2007