NOTE: This article is more than 5 years old.

22 maí 2007

/

Samgönguráðherra og félagsmálaráðherra áttu fund um stöðu atvinnumála á Vestfjörðum

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem báðir eru þingmenn Norðvesturkjördæmis, áttu með sér fund í félagsmálaráðuneytinu í morgun þar sem þeir fóru meðal annars yfir stöðu atvinnumála á Vestfjörðum sem verið hafa í brennidepli undanfarið.


Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.

Á fundi sínum fjölluðu þeir sérstaklega um atvinnuástandið á Flateyri í ljósi þess að fiskiðjufyrirtækið Kambur hefur ákveðið að hætta starfsemi sinni. Fundurinn var einnig liður í að undirbúa fyrirhugaðan fund með öllum þingmönnum Norðvesturkjördæmis um stöðuna. Einnig ræddu ráðherrarnir ýmis önnur málefni kjördæmisins.