NOTE: This article is more than 5 years old.
28 ágúst 2007
/
Dr. Páll Hreinsson skipaður dómari við Hæstarétt Íslands
Dr. juris Páll Sveinn Hreinsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, hefur samkvæmt tillögu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 1. september nk.
Aðrir umsækjendur um embættið voru:
Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA dómstólinn í Lúxemborg
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Reykjavík 28. ágúst 2007